hof hellenskra ástargyðja...

14.01.2009 13:51:49 / erna

AFMÆLI

Í dag á Anna okkar Stefanía afmæli. Til hamingju með það elskan okkar :*

Það er margt búið að gerast frá því að hún varð tvítug... Hún varð nefnilega ólétt og á núna lítinn sætan strák <3 yndislegt alveg!


Alveg að springa rétt áður en hún fæddi.


Hér er mynd af henni og litla rassgatinu sem er ótrúlega líkur mömmu sinni.

Ég segi það enn og aftur: TIL HAMINGJU MEÐ ÁRIN 21 ELSKU ANNA STEFANÍA!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.01.2009 18:24:01 / FreyjaBa

AFMÆLI

Til hamingju með daginn elsku sætu skvízur !!!
Kyss og knús frá öllum!!
Og kyss og knús til heimsfaranna okkar líka :*
Og núna mega allir halla höfðinu þeim til heiðurs... Þessum litlu smápíum sem núna eru farnar að valda usla í heiminum...


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 10:32:51 / kristín gjé

Gleðileg jól og atkvæðagreiðsla!

Gleðileg jól elsku vinkonur vonandi hafið þið það gott yfir hátíðarnar! Ég býst við að sjá ykkur allar með tölu á 2. í jólum!

Svo er það atkvæðagreiðsla hvort þið viljið að Litlu jólin okkar verði að kvöldi þess 27. des eða um miðjan daginn þann 28. des. Endilega segið hvað ykkur finnst sem fyrst!

Stína fína jólasveinn!

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.12.2008 00:35:08 / kristín gjé

Balliball :)

Hæ elsku vinkonur!

Mér datt í hug að hvetja ykkur allar til að mæta á ÁMS í Hvíta húsinu annað kvöld í tilefni af því að þið eruð allar búnar í prófum og að ég átti afmæli í vikunni :) Getum hisst áður og haft það kósý :)

Skilst að það séu mjög margir  að fara þannig að það gæti orðið gaman, líka frítt áfengi og læti :)

VOnast til að sjá ykkur sem flestar!

Stína bína :**

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.12.2008 11:27:14 / hugrún

Hún á afmæli í dag!

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Kristín, hún á afmæli í dag! ;**


http://photos-d.ak.fbcdn.net/photos-ak-sf2p/v310/190/23/605756363/n605756363_1146747_3441.jpg

Til hamingju með afmælið elsku elsku elsku Kristín;***

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.11.2008 16:00:00 / FreyjaBa

Prófablogg

Sælar skvísur!! Hvernig hangir það  ? 
Fyndið hvernig maður (allavegana ég) er bara að skrifa til hvor annarrar þegar maður bloggar! Þetta er eins og að senda eitt stórt hópsms á afródíturnar :) Allavega finnst mér eins og að enginn annar kíkji á þetta ! Þó svo að ég veit að það er bölvað bull og aðsóknin á þetta er svo gríðarleg að blogcentral hefur varla undan!.. :) 

En ég sit hérna við eldhúsborðið heima og sé ekki í það fyrir fyrir blöðum, bókum og öðru drasli sem ég er komin með ógeð á! Mér er búið að ganga fremur illa að læra undanfarna 3 daga og ég má sko ekki við því lengur. Bara kann ekki að laga það! 
Var að spá hvort mig vantaði agaðra umhverfi og reyndi skólann og svona en verð bara stressaðri þar ef eitthvað er og pirruð á allskonar hlutum. 
Svo er tölvan mín með allskonar glósum og dóti ennþá í viðgerð eftir rúman mánuð! Er að verða vitlaus! En er nú að maila hann Sæma á verkstæðinu og hann lofaði að laga hana um leið og monitorinn minn kemur:) Og býst hann við að það verði á mánudaginn ! Óska þess að það passi!!

Annars er helgin að byrja :) Hvað stendur til hjá ykkur?
Ég er að fara á jólahlaðborð á laugardaginn með vinnunni :) Það verður notaleg tilbreyting! Fá hangikjet jammí :)
Það er svo margt skemmtilegt framundan að ég veit ekki hvað sko!! Á engin orð til að lýsa hamingjunni sem mun ríkja í hjarta mér þegar ég hef lokið síðasta prófinu og þangað til að einkunirnar koma til baka eins og hnífstungur í vængina á litlu englabarni!!!!
Æji verður maður ekki bara að vona það besta! Ef mér tekst að ná ætla ég bara að brosa hringinn og passa mig á að kíkja ekki á einkunnablaðið hjá dúxinum okkar... ;) 
Jæja núna kom Kristó heim og benti mér á hvað það er heimskulegt að taka sér próflestrarpásu og nota hana til að blogga um próflestur! Afsakið leiðinlegt blogg!!!

Jæja pæja (ur) Sjáumst síðar dúfurnar mínar :)

» 5 hafa sagt sína skoðun

23.11.2008 22:40:38 / FreyjaBa

SAKN SAKN






    Mér leiðist án ykkar!

» 7 hafa sagt sína skoðun

20.11.2008 11:11:24 / kristín gjé

Mikið rétt fimmtudagur...

Sælar elskulegar.

Fimmtudagur í dag og það sem meira er komin 20. nóvember! Tíminn hreinlega flýgur áfram. Próflestur hafinn á fullu og allir með ljótan, lítinn stresskall í mallanum, já nema ég, og Dóra, því að við förum ekki í nein próf! :D Ja, nema kannski í jólaskreytingum, jólakortagerð, niðurpökkun, innpökkun, myndabandagerð og þar fram eftir götunum ;) Sem sagt, næs líf!

En annars langaði mig bara að athuga hljómgrunn fyrir hitting í kvöld? Það er verið að kveikja á jólaljósunum hérna á Selfossi og datt mér í hug að það gæti verið gaman að komast í smá jólaskap, skoða í búðir og fá okkur heitt kakó á KRúsinni :) Skil samt vel ef að einhverjir nenna ekki yfir heiðina eða ráða ekki við ljóta kallinn í mallanum og ætla að vera heima að friða hann :)

Væri samt gaman að sjá sem flestar :)

Svo var ég að spá í litlu jólin okkar. Heisa klikk er náttúrulega bara á landinu í einn og hálfan tíma þannig að það er ekki um marga valmöguleika að ræða. Held ég að dagarnir 27. des eða 28. des séu eiginlega einu dagarnir sem um ræðir. Held að Heiðrún fari 29. 27. des er náttúrulega alltaf söngpartý í Miðási en kannski vill Heiðrún vera heima með familíunni 28. daginn áður en hún fer. Segið ykkar skoðun á þessu kæru vinsur :)

Einnig langar mig að vita hversu miklum fjármunum þið eruð til í að eyða í þetta? Er með nokkrar kleeeeeeekaðar hugmyndir í kollinum þarf bara að vita budgetið til að geta haldið áfram að skipuleggja :)

Með jólakveðjum,

STína fína :) sem er að fara til Kína :D

» 8 hafa sagt sína skoðun

19.11.2008 19:25:36 / erna

FIMMTUDAGUR...

... á morgun = AFRÓDÍTUKVÖLD!!

  • Staðsetning: Ísland
  • Þema: Skrifa bréf til Heiðrúnar
  • Hvert skal senda bréf:
    • Heiðrún Erna Hlöðversdóttir
    • Elmelundsvej 4 / 1305
    • Bolbro
    • 5220 Odense
    • Danmark
Shiiit hvað það verður gott kvöld á morgun!!
Og það besta er að þið megið ráða öllu öðru, þeas. hvar þið verðið og hvað þið borðið. Æðislegt alveg ;)

Kv. Heiðrún besta


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.11.2008 10:01:27 / FreyjaBa

Fimmtudagur!!!!

Jæja kominn enn einn fimtudagurinn!!! 

Boð í Skaftahlíðina!! Endilega komið og kíkjið á mig, verð kannski með smá kræsingar í boði ef þið eruð heppnar!!

Mæting um 8 nema þið viljið koma á undan mér eins og stundum :) Það er velkomið líka!

Kv.Freyja :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.11.2008 17:17:36 / kristín gjé

Heilsueflingar og skemmtiferð Afródíta og fylgifiska

Afródítur og útvaldir fylgifiskar þeirra halda um komandi helgi í sveitasæluna á óðalsbýlið Miðnes í Gnúpverjahreppi. Setur þetta heyrir til fjölskyldu Lafði VonSexenberg.

Ferðin í Miðnes er eigi löng, aðeins hluti úr dagleið og ætti hver einn og einasti að njóta hennar og þeirra gnótt náttúrundra sem fyrir augu og eyru ber til fullnustu. Áætlað er að aka úr hlaði Selfossbæjar síðari hluta dags eða um klukkan 18 að alíslenskum tíma.

Hugmyndir eru uppi um það að gerð verði sameiginleg innkaup á matvöru í kjörbúð í Selfossbæ. Félagsmenn eru hvattir til þess að samþykkja ellegar fella þessa tillögu í svotilgerða skoðanadálka þessarar síðu við lok lesturs þessarar færslu. Einnig mætti í þeim póstum koma fram hugmyndir að kvöldverðarmatseðli þau kvöld sem um ræðir.

Þar sem eigi urðu afgerandi úrslit í kjöri um þema fyrir þennan viðburð, hefi ég sjálf tekið þá ákvörðun að að kvöld föstudagsins 7. nóvember skulu allir þeir sem stíga fæti inn í Miðnes klæðast svokölluðum "hippa" klæðum. Klæði þessi voru gífurlega vinsæl á 7. og 8. áratug síðustu aldar og sá lífstíll sem þessir svokölluðu "hippar" tileinkuðu sér hefur löngum vakið aðdáun  yngri kynslóða; hvaða unglingur hefði ekki getað hugsað sér að vera á Woodstock? Stundað frjálsar ástir? (sem sumir hafa nú gert nokkuð ótæplega ef ég ætti að segja mitt álit) viljað heimsfrið? Gengið um nakinn og þar fram eftir götunum?

Kvöld þetta mun sem sagt vera algjörlega í anda þessa tímabils, allt frá tónlist til borðskreytinga. 'Eg vonast eftir góðri samvinnu við að búa til rétta stemmingu!

Þá að praktískum atriðum. Rúmpláss er ekki ótakmarkað og því verða sumir tilneyddir til að láta sér nægja að sofa á dívönum á gólfinu eða í sófum. Þeir sem búa svo vel að eiga góðar dýnur eru vinsamlegast beðnir um að láta vita. Einnig mæli ég með því að taka með sér ábreiður til þess að hvílast með. 

Elexír í flösku, skemmtiatriði, spil, útiföt og annað tilfallandi eru nauðsynleg tæki og tól fyrir þessa stórskemmtilegu helgi sem í vændum er!

Vekjið máls á því sem ykkur þykir vanta í þessa umfjöllun mína í skoðanadálkinn.

Verið tilbúin í fjörið!!

Með kveðjum, Lafði Christine!


 

» 8 hafa sagt sína skoðun

29.10.2008 20:51:51 / Inga Berg

Fimmtudagur til frábæris...

Hæ elskulegu vinkonur J

Á morgun er fimmtudagur og það þýðir bara eitt! Ekki satt? Allavega hlakka ég til að það komi fimmtudagar í hverri viku, þeir eru svo skemmtilegir. Reyndar hlakka ég alltaf líka til þriðjudaga afþví þá fer ég í mat til ömmu, svo auðvita líka til helganna, því þá enda ég alltaf á að djamma og það er alltaf svo gaman :P  - þannig að allir dagar eru skemmtilegir hjá mér, eða svona næstum allavega :D

Eeeen tilefni þessa bloggs var semsagt að boða ykkur í kvöldspjall til mín á morgun, svona um klukkan 8 kannski, annars megið þið alveg ráða hvenær þið komið J ég vona auðvita að ég sjá ykkur sem flestar, mér finnst þið nefnilega svo sætar :P

...svo hlakka ég orðið alveg ótrúúúlega mikið til að fara með ykkur í bústað eftir bara rétt rúma viku, þetta líður allt svo hratt! Við þurfum einmitt að plana smá bústómál á morgun ekki satt?

En endilega látiði mig vita hverjar komast á morgun!

Knús til ykkar allra :*

Inga Berg


» 9 hafa sagt sína skoðun

27.10.2008 17:24:56 / kristín gjé

BÚSTAÐUR!

Sælar!

Held að það sé komin tími á umræðu um bústaðarferðina miklu!

Helgina 7.-9. nóvember halda allar þær Afródítur sem hafa tök á að mæta í bústað. Dvalarstaðurinn að þessu sinni mun vera sveitasetur Hjaltason fjölskyldunnar í uppsveitum Árnessýslu, en sá mikli herragarður kallast Miðnes.

Legg ég til að lagt verði upp í þessa langferð laust upp úr 18:00 þann 7. nóvember með stuttu stoppi í kjörbúð þar sem við munum nálgast matvöru fyrir dvölina. Áætlaður komutími er um 19:45.

Sameining í bíla getur verið hentugur kostur, beri svo undir að viðkomandi hafi laust sæti í ökutæki sínu. Slík niðurröðun er þó ekki nauðsynleg að svo stöddu heldur mun hún vera rædd síðar.

Að öðrum praktískum atriðum...

Allir vita að í samkomum sem þessari er mikilvægt að hafa skemmtilegt þema til að brydda upp á samkomuna. Mæli ég með einhverju sem bíður upp á fjölbreytta möguleika og gefur ímyndunaraflinu lausan tauminn.
    
        Sjálf hef ég fengið nokkrar fremur snjallar hugmyndir sem ég viðra hérna við ykkur. Ykkur er síðan meira en lítið velkomið að reyna að bæta við betri hugmyndum (gangi ykkur vel! ;)

Í fyrsta lagi er það geimþema; gefur marga mjög góða möguleika á að vera frumlegur og sýnir það og sannar að tækifærin takmarkast við endimörk alheimsins!
Í öðru lagi  var það Bold and the B E A Utiful þema þar sem útlit stjarnanna í hinum góðkunnu sjónvarpsþáttum verður haft að leiðarljósi. Það takmarkast þó að mestu við hallærislegt útlit 9. áratugarins, blásið hár, axlapúða og þar fram eftir götunum. Spurning um að 80´s þemað sé samt að verða eilítið þreytt?
Í þriðja lagi var það hippaþema; ég held að ég geti með fullri vissu sagt að ef valið verður þetta verður það í fyrsta sinn í sögu þemakvölda okkar Afródíta. Möguleikarnir eru í raun endalausir, allt frá víðum mussum, jeskúklæða, sveppum, rifnum útviðgallabuxum til adamsklæðanna...
Í fjórða lagi gætum við haft Flottir og frægir þema:  hver og einn myndi velja sér þekkta persónu til þess að stæla og gera það með stæl.
Í fimmta lagi..... megið þið koma með hugmyndir :)


Koma svo! Virk umræða um þetta mikilvæga málefni!

Huga þarf vel að því hvað skal setja ofan í pinkla og pakka fyrir brottför. Til að auðvelda ykkur verkið mun ég rita hér stuttan gátlista.

Náttserkur
Kjaftbursti
Áfengur elexír
Unnusti (ef hentar)
Þemaklæðnaður
Létt lund (Helst nauta)
Skemmtilegur leikur eða skemmtiatriði (skylda!)
Borðspil
Góð mjúsíkk
Útivistaralklæðnaður
Sundfatnaður
osfrv....


KRistín er úti....







» 5 hafa sagt sína skoðun

23.10.2008 23:02:13 / FreyjaBa

NÝTT

Jæja ég hef með mikla trú á okkur að hressa þessa síðu við og gera hana eina þá heitustu í dag! Ef þið farið í myndasöfn og veljið þar uppáhaldshlunkarnir þá getiði fylgst með hverjum eg gef titilinn Hlunkurinn!! :) Og auðvitað eigið þið að hjálpa til ef að ég er ömurleg í þessu eða ef þið eigið geggjaða hlunka! Elska hlunka dót :) Og svo getum við gert ennþá flottara og nýrra dót og eitthvað! OG ég veit að þetta er ömurlegur staður en ég  kunni ekki betur... Og lesið bloggið hennar Kristínar af því að það er svona 50. þúsund sinnu betra en þetta junk :)
P.s sorry að ég kom ekki í kvöld!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.10.2008 16:12:36 / kristín gjé

Góðan dag!

Komiði allar saman hjartanlega sælar elsku vinsur!

Ákvað að hripa niður nokkrar línur þar sem ég hef nákvæmlega ekkert að gera, er búin með bókina mína og Q, og Séð og heyrt, og vikuna og Gestgjafann og Mannlíf og Nýtt Líf og Söguna alla og Skakka turninn nú fyrir utan það að skoða ALLT sem ég get skoðað á netinu hérna á kassanum. Já ég segi Á kassanum, ég er ekki Í kassa Inga mín :) Konan sem ég var að leysa af í sumar er mætt aftur til starfa og því hef ég flutt mig um set niður í búðina :)

Inga var eitthvað að tala um jólaskap síðast, ég er ekki frá því að það fari að detta inn hérna megin líka þar sem að ég er að fara að taka upp jólavörur á eftir! Djís lúís, og það er október!

Annars er allt fínt að frétta héðan, Hildur syss og fjölskylda eru útskrifuð af spítalanum og komin heim, rosa gaman að geta heimsótt þau án þess að þurfa að fara í sótthreinsandi sturtu, mega vera hjá þeim lengur en í 5 mínútur og geta hækkað röddina um nokkur desibil án þess að fá "the evil eye" frá einhverri hjúkkunni!

(Ætla bara að afsaka mig strax, þetta verður alltof langt og leiðinlegt blogg, en eins og ég segi... ég hef ekkert annað að gera :P)

Tíminn flýgur áfram! Við erum að tala um það að nóvember kemur í næstu viku! Í dag eru 73 dagar þangað til við Dóra förum... Eigum bara eftir 2 sprautur! Eftir það... ódauðlegar!

Vona að þið hafið allar fengið smsið frá mér um Kaffi og með því á Skóló í kvöld um 8. Annars sjáið þið það hér og NÚ! :)

Eru e-r plön fyrir helgina annars stelpur? Buddan segir nei en bólan segir já... Þetta er slæmt ég veit... Er að reyna að hemja mig og ég veit að það er glatað að langa alltaf til að djamma en ég meina ég er bara að halda uppi heiðri einhleypra. skemmtanaglaðra Afródíta... Talandi um Einhleypar... Einhleypufélagið Einar (sem samanstendur af einhleypum Afródítum) er með í bígerð að innleiða nýja meðlimi í félagið og henda öðrum fyrir borð (Þeir sem fá reglulega næturgesti geta ekki verið með! ;)

Fyrst að ég er komin svona all hressilega í bullið og bloggið orðið þetta langt ætti ég kannski bara að reyna að slá öll met og tapa mér hreinlega. Skrifa lengsta blogg sem um getur? hvað segiði um það?? Þið fáið svosem ekkert um það að segja reyndar. En mikið herfilega er ég léleg í að blogga! Eins gott að æfa sig fyrir ferðina maður! Ekki vil ég að fólk deyji úr leiðindum yfir því bloggi, fínt að æfa sig hér þar sem ég held eiginlega að við séum þær einu sem fylgjumst með hérna :) sem er bara gott!

Smá öppdeit kannski?? Ég held það... nógur tími ;)

Anna Stefanía: Er þessa dagana hjólandi eins og enginn sé morgundagurinn í borg óttans. Hún er að byrja að máta hjálpartæki kennslunnar um þessar mundir og er hún sérstaklega að fíla kennaraprikið. Anna auglýsir eftir ungum folum til að testa það á. Áhugasamir hafi samband í síma 8486854.

Dóra: hefur ákveðið að skipta um starfsgrein; hætta í matvælaiðnaðinum og hefja störf í heilbrigðisgeiranum. Telur Dóra að þessi umsvif geti haft gríðarlega góð áhrif´á starfsferil sinn sem og andlega og líkamlega heilsu hennar svo ekki sé minnst á heilsu afa hennar sem hún mun einmitt annast það sem eftir lifir árs. Ekki leiðinlegt að eyða deginum með Dóru stripper, takk fyrir túkall!

Ester: Er búin að  vera inn á taugadeild Landspítalans síðastliðnar vikur. Orðið á götunni er að hún hafi algjörlega tapað sér á tauginni í kreppunni. Hið rétta er þó að hún var í verknámi. Ester hefur sett sér háleit markmið og stefnir nú á leik í kvikmyndum. Hún hefur nú þegar leikið í stórsmellinum Inn og út, eða eins og það útleggst á engilsaxnesku In and out. Mynd þessi fjallar á mjög opinn og einlægan hátt um samskipti kynjanna. ÞEss má geta að ástmaður hennar Jensen skrímslið leikur á móti henni í myndinni. Undirrituð hefur séð brot úr myndinni og þótti mikið til koma.

Freyja: varð svo út úr kókuð á Airwaves um síðustu helgi að Inga hefur þurft að vera ein í skólanum alla þessa viku. Spurning um að Eiki, Kristó og Sindri ástmenn hennar fari að rífa sig upp af rassgatinu og sækja hana niður á Hlemm fyrir kvöldið? Einnig hefur því verið fleygt fram að Freyja og ástmenn hennar þrír ætli að ættleiða. Börnin koma frá KLængsseli og eru af hundakyni. Þeim svipar, merkilegt en satt, til tilvonandi feðra sinna.

Heiðrún: hefur gleymt Íslandi. Hún og Pelle voru úti að hlaupa og Heiðrún hljóp á tré og missti minnið. Pelle plataði hana og sagði að hún væri dönsk og að hún hefði aldrei komið til Íslands. Sigga tönn og HLölli besti hófu leit að ástkærri dóttur sinni og létu ekki þar við sitja heldur fóru sjálf á staðinn og reyndu að sannfæra Heiðrúnu um að hún væri dóttir hennar og ætti vinkonur á Íslandi. Heiðrún hélt nú ekki, sendi þau heim með fyrstu vél og sagði TAG OG FUCK AF! Fyrir góðvild Pelle hefur hann þó ákveðið að senda kjellu heim um jólin  til þess að ganga frá sínum málum hér , en þó í mjög skamman tíma!

Hugrún: sést iðullega í erótískum verslunum höfuðborgarsvæðisins í leit að hinum fullkomna hjúkkubúning. Hann er enn ekki kominn í leitirnar enda vandfundinn. Þeir sem bent geta á gripinn sem undirstrikar fegurð og fágun Hugrúnar sem hjúkrunarfræðings geta látið Sæla vita í síma 900-6969. Símtalið kostar 499 kr. mín.

Inga Berg: hagar sér í meira lagi undarlega þessa dagana. Sumir myndu orða það þannig að hún væri bara alveg gúgú! Allavega sá ég hana um síðustu helgi og hún var með sósulit framan í sér? Veit ekki alveg hvað það átti að þýða?

Kristín: af mér eru engar fréttir

Með kveðju...

Lafði Kristín VonSexenberg




» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Myndbönd
Leitarbox